Svoboda | Graniru | BBC Russia | Golosameriki | Facebook
Transfiguration pending
Fara í innihald

Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn
(á opinberum tungumálum)
  • Enska:International Criminal Court
    Franska:Cour pénale internationale
    Arabíska:المحكمة الجنائية الدولية
    Kínverska:国际刑事法院
    Rússneska:Международный уголовный суд
    Spænska:Corte Penal Internacional
Merki Alþjóðlega sakamáladómstólsins

Kort sem sýnir aðildarríki Alþjóðlega sakamáladómstólsins.
  Aðildarríki
  Ríki sem hafa undirritað en ekki fullgilt Rómarsamþykkt
  Aðildarríki sem dró aðild sína til baka
  Undirskriftarríki sem dró undirskrift sína til baka
  Hvorki aðildarríki né undirskriftarríki
SkammstöfunICC
StofnunRómarsamþykkt gerð: 17. júlí 1998; fyrir 25 árum (1998-07-17)
Tók gildi: 1. júlí 2002; fyrir 22 árum (2002-07-01)
HöfuðstöðvarFáni Hollands Haag, Hollandi
ForsetiTomoko Akane
Vefsíðawww.icc-cpi.int

Alþjóðlegi sakamáladómstólinn er milliríkjastofnun sem situr í Haag í Hollandi. Hann hefur sjálfvirka lögsögu sem sóknaraðili gegn einstaklingum sem grunaðir eru um alþjóðaglæpi sem þýðir að dómstólinn er óháður sérstöku samþykki viðkomandi ríkja. Dæmi um mál sem dómstólinn getur látið til sín taka eru þjóðarmorð, glæpir gegn mannkyni og stríðsglæpir. Í nánustu framtíð er hægt að sjá dómstólinn sækja mál er varðar brot á „almennum“ friði í heiminum.

Dómstólnum er ætlað að vera framlenging við núverandi innlend dómskerfi hjá þjóðum heimsins. Dómstólinn getur aðeins beitt lögsögu sinni þegar ákveðin skilyrði eru uppfyllt, svo sem þegar innlendir dómstólar eru ófúsir eða ófærir um að sækja glæpamenn til saka. Einnig er það skilyrði að annaðhvort þegnríki hins ákærða eða ríkið þar sem ákært brot var framið í sé aðili að Rómarsamþykktinni. Í málum sem tengjast stríðsglæpum er aðildarríkjum heimilt að undanþiggja sig lögsögu dómsins í allt að sjö ár frá aðild ríkisins að samþykktinni. Einnig getur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vísað málum til dómstólsins og einnig einstök ríki. Dómstólinn var stofnsettur 1. júlí 2002, sama dagsetning og Rómarsamþykktin gekk í gildi. Rómarsamþykktin er samþykkt sem lögð er til grundvallar dómstólnum. Hún er þjóðréttarsamningur sem ríki gerast aðilar að með undirritun Rómarsamþykktarinnar og verða þar með aðilar að dómstólnum.

Á alþjóðaráðstefnu í Róm 1998, samþykktu 120 ríki að koma dómstólnum á legg. Síðustu ellefu samþykktirnar sem nauðsynlegar voru fyrir samþykkt dómstólsins voru fullgiltar 11. apríl 2002. Ísland varð tíunda aðildarríkið til þess að fullgilda samþykktina þann 25. maí árið 2000. Með fullgildingu samþykktarinnar hafa 122 ríki gerst aðilar að Alþjóðasakamáladómstólnum. Alþjóðasakamáladómstóllinn er varanlegt dómsvald, ólíkt til dæmis Alþjóðastríðsglæpadómstólnum sem fékkst við málefni fyrrum Júgóslavíu og Rúanda þar sem er takmörkuð lögsaga er varðar tíma og rúm. Mál sem dómstóllinn getur tekið til meðferðar verða að hafa verið framin eftir stofnun hans 1. júlí 2002.

Uppbygging[breyta | breyta frumkóða]

Dómstóllinn hefur fjórar meginstoðir í sínu innra kerfi. Það er formennska fyrir dómstólnum sem er skipuð þremur dómurum sem eru valdir af jafningjum sínum í dómstólaráði dómstólsins. Forseti dómstólsins er Tomoko Akane (Japan). Rosario Salvatore Aitala (Ítalía) er fyrsti varaforseti og Reine Alapini-Gansou (Benín) er annar varaforseti. Dómstólaráðið hlustar á mál sem eru sótt fyrir dómnum. Það er skipað 18 dómurum sem er skipt upp í deildir.

Dómarar[breyta | breyta frumkóða]

Eftirtaldir dómarar skipa dómstólinn og þar með dómstólsráðið.

Dómarar við Alþjóðlega sakamáladómstólinn
Nafn Ríki Tók við embætti Term End Deild
Athugasemdir
Tomoko Akane  Japan 2018 2027 Áfrýjunardeild Forseti
Rosario Salvatore Aitala  Ítalía 2018 2027 Forréttardeild Fyrsti varaforseti
Reine Alapini-Gansou  Benín 2018 2027 Forréttardeild Annar varaforseti
Luz del Carmen Ibáñez Carranza  Perú 2018 2027 Áfrýjunardeild
Solomy Balungi Bossa  Úganda 2018 2027 Áfrýjunardeild
Kimberly Prost  Kanada 2018 2027 Réttardeild
Joanna Korner  Bretland 2021 2030 Réttardeild
Gocha Lordkipanidze  Georgía 2021 2030 Áfrýjunardeild
Socorro Flores Liera  Mexíkó 2021 2030 Forréttardeild
Sergio Gerardo Ugalde Godinez  Kosta Ríka 2021 2030 Forréttardeild
Miatta Maria Samba  Síerra Leóne 2021 2030 Réttardeild
Althea Violet Alexis-Windsor  Trínidad og Tóbagó 2021 2030 Réttardeild
Keebong Paek  Suður-Kórea 2024 2033 Réttardeild
Erdenebalsuren Damdin  Mongólía 2024 2033 Áfrýjunardeild
Iulia Motoc  Rúmenía 2024 2033 Forréttardeild
Haykel Ben Mahfoudh  Túnis 2024 2033 Forréttardeild
Nicolas Guillou  Frakkland 2024 2033 Réttardeild
Beti Hohler  Slóvenía 2024 2033 Réttardeild

Skrifstofa saksóknara er undir stjórn saksóknara sem rannsakar og sækir mál fyrir dómstólnum. Skrifstofunni veitir forstöðu Karim Ahmad Khan (Bretland) sem var kosin af aðildarríkjunum til að gegna embætti í níu ár. Saksóknara til aðstoðar er aðstoðarsaksóknarinn Nazhat Shameem (Fídjí).

Að lokum heyrir almenn stjórnsýsla réttarins undir dómritara, hann er kosinn til fimm ára í senn af dómurum. Þar fellur undir stjórn höfuðstöðva, framkvæmd gæsluvarðhalda og aðstaða verjenda auk annars. Að auki eru nokkrar undirstofnanir starfandi við réttinn. Þar má meðal annars nefna skrifstofu verjenda fórnarlamba og skrifstofu verjenda ákærðra við dómstólinn.

Einnig er starfandi sjóður innan dómstólsins stofnaður af aðildarríkjum hans sem styður við fórnarlömb og aðstandendur mála sem falla undir lögsögu hans.

Handtökuskipanir[breyta | breyta frumkóða]

Þann 17. mars 2023 gáfu dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins út handtökuskipun á hendur Vladímír Pútín, forseta Rússlands, og Maríu Lvova-Belova, umboðsmanni barna í Rússlandi, vegna tilkynninga um að fjölda úkraínskra barna hefði verið rænt í innrás Rússa í Úkraínu og þau flutt til Rússlands.[1]

Þann 20. maí 2024 fór Karim Ahmad Khan, saksóknari við sakamáladómstólinn, fram á að alþjóðleg handtökuskipun yrði gefin út á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, Yoav Gall­ant, varnarmálaráðherra Ísraels, og gegn háttsettum leiðtogum innan Hamas-samtakanna, vegna ætlaðra stríðsglæpa og glæpa gegn mannúð sem framdir hefðu verið í stríði Ísraels og Hamas frá því í október 2023.[2]

Heimildir[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]

  1. Samúel Karl Ólason (17. mars 2023). „Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín“. Vísir. Sótt 2022.
  2. „Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn vill handtaka Netanjahú“. mbl.is. 20. maí 2024. Sótt 22. maí 2024.