Svoboda | Graniru | BBC Russia | Golosameriki | Facebook
Fara í innihald

Hryðjuverkin 11. september 2001

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Árásin á Tvíburaturnana)
World Trade Center turnarnir í ljósum logum þann 11. september 2001 eftir að farþegaþotum hafði verið flogið á þá. Mikinn dökkgráan reykjarmökk leggur frá toppi turnanna.

Hryðjuverkin 11. september 2001 voru umfangsmiklar hryðjuverkaárásir í Bandaríkjunum þriðjudaginn 11. september 2001, sem skipulögð voru og framkvæmd af Osama bin Laden. Þennan dag var fjórum farþegaþotum rænt á flugi yfir austurströnd Bandaríkjanna, tveimur þeirra flogið á World Trade Center tvíburaturnana í New York, einni flogið á Pentagon-bygginguna í Arlington-sýslu í Virginíu og ein hrapaði í Somerset-sýslu í Pennsylvaníu eftir átök um borð milli farþega og flugliða við hryðjuverkamennina. Ekki er vitað hvert fjórða skotmarkið var en talið er að það hefði verið annað hvort Hvíta Húsið eða Þinghúsið í Washington DC.

Báðir turnar World Trade Center hrundu til grunna og miklar skemmdir urðu bæði á nærliggjandi byggingum og á Pentagon. Auk hryðjuverkamannanna 19 létu 2973 lífið í árásunum, sem höfðu mikil áhrif á alþjóðasamfélagið. Eftir þær hófu Bandaríkjamenn stríðið gegn hryðjuverkum, réðust inn í Afganistan og steyptu þar talíbanastjórninni af stóli og tveimur árum seinna í Írak.

Sjá einnig

[breyta | breyta frumkóða]
  Þessi Bandaríkja-tengda grein sem tengist sögu er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.