Svoboda | Graniru | BBC Russia | Golosameriki | Facebook
Fara í innihald

Brúðubíllinn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Brúðubíllinn er brúðuleikhús undir stjórn Helgu Steffensen sem hefur aðsetur í sendiferðabíl. Brúðleikhúsið setur upp flestar sýningar sínar í görðum og barnaheimilum á höfuðborgarsvæðinu og víðar á Ísland. Sýningar fara aðallega fram að sumri til.

Brúðubíllinn var stofnaður árið 1976 af Sigríði Hannesdóttur og Jóni E. Guðmunds­syni. Upphaf hans má rekja allt aftur til ársins 1968 þegar Leikbrúðuland Jónsvar stofnað.[1] Þegar Jón sagði skilið við Brúðubíl­inn í kringum 1980 kom Helga Stef­fen­sen í stað hans.[2] Sýningar eru í júní og júlí á hverju ári og hvortveggja mánuðinn eru frumsýnd leikrit. Þekktasta brúðan er Lilli sem var ásamt Helgu umsjónarmaður Stundarinnar okkar á árunum 1987-1994.

  • Brúðubíllinn Geymt 25 júlí 2009 í Wayback Machine
  • Glatkistan
  • „Saga Brúðubílsins“. Sótt 4. ágúst 2009.
  1. „Brúðubíllinn (1976-)“. Glatkistan. 2. janúar 2019. Sótt 29. júní 2024.
  2. „Andlát: Sigríður Hannesdóttir“. www.mbl.is. Sótt 29. júní 2024.